Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla sem eftir því leita um sínar niðurstöður í PISA 2025. Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnarráðsins.
Þar segir að þau sveitarfélög sem þegar hafi óskað eftir sínum niðurstöðum muni fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD.
Afstaða ráðuneytisins virðist því hafa tekið breytingum frá því fyrr í mánuðinum en ráðuneytið birti upphaflega niðurstöður úr sjö stærstu sveitarfélögum landsins, sem ná til um 75% þátttakenda í PISA 2025 á Íslandi.
Þess má geta að niðurstöðurnar sem voru kynntar þá voru bæði sýndar leiðréttar og óleiðréttar með tilliti til félags- og efnahagslegrar stöðu, það er menntunar og starfs foreldra, eigna á heimilinu og erlends bakgrunns.
Af hverju voru niðurstöður leiðréttar?
Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sýna rannsóknir að þessir þættir sýni talsverða fylgni við námsárangur, meðal annars í PISA.
Leiðréttingin ber nemendur hvers sveitarfélags saman við nemendur á landsvísu í svipaðri félags- og efnahagslegri stöðu og með sama bakgrunn.
Ef munur á frammistöðu nemenda í sveitarfélagi og landsmeðaltali minnkar eða hverfur við leiðréttinguna skýrist munurinn að hluta eða að mestu af samsetningu nemendahópsins.
Í tilkynningu þar um þann 8. október sagði ráðuneytið að PISA-könnunin miðaði ekki að því að veita niðurstöður fyrir einstaka skóla heldur væri henni ætlað að gefa heildarmynd af hæfni 15 ára nemenda í hverju þátttökulandi. Því yrðu niðurstöður ekki reiknaðar fyrir einstaka grunnskóla eða fámenn sveitarfélög hvert fyrir sig, heldur eru fámennari sveitarfélög sýnd saman.
Í tilkynningunni í dag segir að upplýsingagjöf til sveitarfélaga og grunnskóla falli vel að áherslu þess undanfarin misseri að fá fram heildstæða yfirsýn yfir stöðu íslenskra barna í námi.
Þá verði niðurstöður Matsferils, stöðu- og framvinduprófs í lesskilningi og stærðfræði sem lögð voru fram í vor, birtar opinberlega eftir skólum næsta vor ásamt niðurstöðum í lesfimi. Með þeim verður hægt að bera saman niðurstöður milli skóla og jafnframt fylgjast með þróun milli ára.