|
|
 |
|
| |
Lægir þegar líður á daginn Víða verður frekar hvasst og blautt í dag en þó dregur úr vindi eftir því sem líður á daginn. Hiti verður á bilinu fjögur til tíu stig. Norðausturland ætti að sleppa við rigningu að mestu. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld: Suðvestan 10-18 metrar á sekúndu og skúrir í dag, en að mestu þurrt norðaustan- og austanlands. Lægir smám saman, sunnan og suðvestan 5-13 síðdegis. Bætir í úrkomu, rigningu eða skúrir í kvöld, þó síst á Norðausturlandi. Hiti 4 til 10 stig. Sunnan 8-13 metrar á sekúndu austast á morgun, annars hægari vindur. Rigning eða slydda austantil, en skúrir eða slydduél við vesturströndina.
19.10.2026 06:54
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |