RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætó geta átt yfir höfði sér sekt

Farþegar sem spila háværa tónlist í strætisvögnum á Englandi gætu átt á hættu á að vera sektaðir. Stjórnvöld ætla að taka harðar á óæskilegri og truflandi hegðun í almenningssamgöngum.

Sektin nemur allt að 100 pundum, jafnvirði rúmlega 16 þúsund króna. Aðgerðir stjórnvalda miða einnig að því að taka á öðrum hlutum eins og að skilja eftir rusl á víð og dreif, veipa og sýna ógnandi hegðun. Sveitarfélög fá nýjar heimildir til að sekta þá sem gætu verið brotlegir í strætisvögnum.

Stjórnvöld eru einnig að setja á koppinn landsátak sem hvetur farþega í lestum til að ,,deila vagninum, ekki hávaðanum," eins og það er orðað.

Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, sagði alla kannast við að vera í lestum þegar einhver byrjar að spila tónlist eða myndbönd úr símanum á hæsta styrk. ,,Það getur farið verulega í taugarnar á manni og fljótt eyðilagt ferðina."

Samkvæmt gildandi heimild má vísa þeim, sem neita að hætta eftir að hafa verið beðnir um það, út úr lest eða sekta þá um allt að þúsund pund.

Heidi Alexander, samgönguráðherra, sagði litlar breytingar geta breytt upplifun fólks sem notar almenningssamgöngur til muna.

Stjórnvöld hafa gefið út nýjar leiðbeiningar til sveitarfélaga um heimildir til að taka á hárri tónlistarspilun og óæskilegri hegðun í strætisvögnum á Englandi. Þær gera sveitarfélögum kleift að setja sérstakar reglur um hegðun í vögnunum en samgönguráðherra þarf þó að samþykkja þær.

Bílstjórar bera ekki ábyrgð á að framfylgja reglunum heldur sjá eftirlitsaðilar og lögreglan um að bregðast við brotum. Farþegar geta kvartað til þeirra.

19.10.2026 11:18


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000891
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.