32-liða úrslit bikarkeppni karla í körfubolta halda áfram í dag. Fyrstu deildar lið Breiðabliks tekur á móti Grindavík.
Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er sýndur beint á RÚV2.
Gunnar Birgisson lýsir og með honum verður Benedikt Guðmundsson.
Sindri, KR, Valur, Aþena,/Leiknir, Njarðvík, Stjarnan, ÍR, Hamar og Höttur eru komin áfram.
Í dag fara fjórir leikir fram
ÍA - ÁlftanesHaukar - TindastóllBreiðablik - Grindavík - RÚV2 - 19:25Laugdælir/Uppsveitir - KV
29 lið voru skráð til leiks og því voru 13 viðureignir í 32-liða úrslitum en þrjú lið fóru beint áfram í 16-liða úrslit. Það voru Snæfell, Keflavík og Ármann.