RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 8,7°C
Stykkishólmur: 5,7°C
Ísafjördur: 6,1°C
Blönduós: 5,1°C
Akureyri: 8,3°C
Egilsstadir: 8,2°C
Höfn: 8,3°C
Selfoss: 6,5°C
Hveravellir: 0,6°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Lagerinn að tæmast og von á hraðsendingu í næstu viku

Lager fataverslunarinnar Skims í Kringlunni fer að klárast og þegar er búið að leggja inn hraðpöntun á næstu sendingu til landsins. Verslunin var opnuð í Kringlunni í dag.

Ingibjörg Kristófersdóttir, annar eigenda fyrirtækisins Föt og skór ehf. sem stendur að opnuninni segir daginn hafa verið ,,algjöra sprengju."

,,Bara alveg frá því að við opnuðum klukkan tólf og við erum uppseld í alveg rosalega mörgum ,,itemum" og ákveðnum stærðum. Þannig ég stökk heim klukkutíma eftir opnun til þess að gera hraðpöntun."

Von er á hraðsendingum til landsins á mánudag og þriðjudag.

Bómullarvörurnar sérstaðan

SKIMS var stofnað af Kim Kardashian, raunveruleikastjörnu og athafnakonu. Það var ekki auðvelt að því að fá merkið til landsins, en það gekk að lokum og er merkið komið til að vera að sögn Ingibjargar. Skims er hvað vinsælast fyrir bómullarvörur sínar og einmitt þær ruku út í dag.

,,Hver er vinsælasta varan? Nærfötin eru rosalega vinsæl, þessi sem eiga að passa á alla og öll bara þessi bómullarvara, langerma bolir, bolir og náttföt. Það er búið að vera mikil hreyfing á þessu í dag."

15.10.2026 20:34


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
000888
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.