Í tilefni sjónverndarviku buðu Sjónstöðin, Blindrfélagið og Tennishöllin í Kópavogi almenningi að kynnast tennis fyrir blinda og sjónskerta í vikunni. Þetta er í fyrsta sinn sem íþróttin er iðkuð á Íslandi og Anna Sigrún Davíðsdóttir leit við og kynnti sér málið.
Íþróttin á uppruna sinn að rekja til Japan á níunda áratugnum. Markmiðið er að ná íþróttinni inn á Paralympics leikana.
Það heyrist í hringlu í boltanum, sem er mýkri og þyngri en hefðbundinn tennisbolti. Völlurinn er aðeins minni en hefðbundinn tennisvöllur og línurnar eru upphleyptar til að keppendur finni fyrir þeim.
Fjórir flokkar eru til staðar eftir blindustigi og má boltinn ýmist skoppa tvisvar eða þrisvar eftir því hve mikil sjónskerðingin er.
Rætt er við Helga Hjörvar, Þorkel Jóhann Steindal og Wesley O'Brien um íþróttina.