Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja dómi Landsréttar frá í síðustu viku þar sem karlmaður á fertugsaldri var sýknaður af nauðgun, samkvæmt svari við fyrirspurn fréttastofu.
Maðurinn var sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi þegar réttað var yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 2,5 milljónir í bætur.
Landsréttur sneri dómnum við þar sem tveir af þremur dómurum töldu ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni, en fram kom að þau hafi komið sér saman um harkalegt kynlíf. Hún hefði einu sinni notað öryggisorð og maðurinn brugðist við því.
Samkvæmt ákæru hlaut konan margs konar áverka eftir atvikið, meðal annars rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind.
Einn dómari skilaði sératkvæði og vildi sakfella manninn.
Konan hefði samþykkt að kynlífið mætti vera harkalegt en ekki samþykkt hvaða ofbeldisfullu háttsemi sem er. Hafið væri yfir vafa að maðurinn hefði beitt konuna mun meira ofbeldi en hún hefði samþykkt.
Dómur Landsréttar vakti hörð viðbrögð. Meðal annars sagði Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar - Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, í samtali við fréttastofu að dómurinn geri lítið úr ofbeldi.
Sérstaklega alvarleg séu þau skilaboð sem dómurinn sendi þolendum kynferðisofbeldis.
,,Við vitum að fólk getur frosið við ógnvekjandi aðstæður og verið ófært um að mótmæla og þess vegna finnst mér mjög varhugavert að verið sé að nota það gegn brotaþola að hún hafi ekki náð að segja öryggisorðið oftar en einu sinni."