Jón Þórarinn Þorsteinsson var í ham í dag.Mummi LúFH-ingar voru ekki í vandræðum með Fram í efstu deild karla í handbolta í dag. Þeir unnu öruggan 28-36 sigur og stungu af í seinni hálfleik.
Í hálfleik leiddu Hafnfirðingar 16-17 en munurinn var orðinn tíu mörk, 25-35, þegar skammt var eftir.
Jón Þórarinn Þorsteinsson fagnaði sæti í landsliðinu með 40% markvörslu og 18 vörðum skotum.
Ómar Darri Sigurgeirsson var allt í öllu í sóknarleik FH og var með 11 mörk auk sex stoðsendinga.
Hjá Fram voru þeir Haukur Ingi Hauksson og Marel Baldvinsson markahæstir með sex mörk hvor.
FH er í þriðja sæti með níu stig en Fram er í 10. sæti með fjögur.